Strengjasveit

Semsagt:

Fjármálaeftirlið var létt strengjasveit sem spilaði undir veisluborðum útrásarinnar en ríkisstjórnin þjónaði til borðs.


mbl.is Fréttaskýring: Vígreif varnarræða seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugumferðarstjórar eiga skilið að fá himinhá laun

Allir sem hafa nokkra dropa af sómatilfinningu styðja baráttu flugumferðastjóra. Það sér heilvita maður að grunnlaun upp á tæpa hálfa milljón er bara ekki nógu langt yfir meðallaunum venjulegra flugfarþega. Það sjá allir sem hafa farið út á flugvöll að flugumferðarstjórar bera við himininn í háum turnum og miða þvi  laun sín við þá. Þeir eiga því ætíð að vera í skýjunum með grunnlaun sín og í sjöunda himni með heildarlaunin.

Til þess er verkfalsrétturinn.


mbl.is Stefnir í verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Clinton situr í súpunni...

...en eigi er enn sopið kálið þó að í ausuna sé komið ! Obama er búin að fá sig fullsadda á hinni ólseigu Clinton enda hefur hann haft hana lengi á milli tannanna en Sigmund fær að súpa seyðið.


mbl.is Myndasaga Sigmunds gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyllerí út á túni

Eitthvað fer þetta aldurstakmark fólks að tjaldstæðum bæjarins við Kalmansvík vegna bæjarhátíðarinnar Írskir dagar fyrir brjóstið á fólki. Það er svo sem skiljanlegt að fólki sé ofboðið en getur ekki verið að hneykslunin sé svolítið á misskilningi byggð?

Landeigandi sem setti upp samskonar hátíð út á túni í sínu eigin landi (sem héti héti Eignarland ehf) gæti sett þær reglur sem honum sýndist um umgengni og aldurtakmörk á sama hátt og veitingahúseigendur sem hika ekki við að setja aldurstakmörk. Hins vegar gengi varla að sveitarfélagið bannaði fólki undir 23 ára að sækja hátíðir eða skemmtanir sem fram færu í bæjarfélaginu á vegum einkaaðila. En í þessu tilfelli vill svo skemmtilega til að landeigandinn og hátíðarhaldarinn er bæjarfélagið sjálft. Því ljóta fulltrúar þess að geta því sett þær reglur um aðgengi fólks að þessari tilteknu hátíð, fyrir hönd eiganda sinna, á sama hátt og skemmtistaðir eru t.d. með 25 ára aldurtakmark.

Hver er annars munurinn á Írskum dögum og venjulegri krá? Eru ekki Írskir dagar bara fyllerí út á túni?


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sinueldar - vorið er komið

Það er kannski ekki við hæfi að játa að mér hlýnar alltaf um jurtaræturnar þegar ég heyri um sinuelda. Eldurinn, reykurinn og lyktin ásamt lögreglu og slökkviliði er tákn fyrir vorkomuna, áhyggjuleysi æskunnar og eilífrar hamingju enda er sinan eins og mara fortíðar sem er hindrun fyrir grösugri og fallegri framtíð! 

Ég man daginn sem í flutti úr Kleppsholtinu yfir í Hvassaleitið. Móarnir sem nú hýsa Kringluna voru alelda, alveg alelda og ég varð alveg heillaður. Á hverju vori útvegaði ég mér eldspýtur og kveikti í sinunni eins og öll venjuleg börn.  Til að spara eldspýtur notaði ég sinuvöndul til breiða eldinn út sem breiddist hratt út - enda eldur í sinu. Ég koma sótsvartur, sæll og glaður heim á hverju kvöldi. Í minningunni sit ég sveittur eftir vel brennt dagsverk og saup á sjóðheitri kjötsúpunni á meðan slökkviliðið vann sitt verk án árangurs fyrir utan stofugluggann. 

Nokkrum vikum seinna var leiksvæði okkar milli heimsálfanna tveggja, Hlíða og Hvassaleitis, orðið grösugt, grænt og vænt.


mbl.is Búið að slökkva sinueldinn í Elliðaárdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá miðvikudegi til föstudags

Á miðvikudegi í mogga er sagt frá því að aðeins 5% þeirra sem hættu að reykja drápu í sígarettunni einir og óstuddir, en tveimur dögum seinna geta hvorki meira né minna en 70% hætt að reykja bara sisvona án plástra, námskeiða og lyfja.

Á miðvikudegi er viðtal við Dr Robert West sem er svartsýnn á að reykingafólk geti hætt án heimilislækna og hjálparlyfja. Á föstudegi er allt annað upp á teningnum ef marka má skýrslu sem Lýðheilsustofnun hefur birt.

Miðvikudagur: "Yfir 70% þeirra sem tókst að hætta að reykja fengu enga sérstaka aðstoð við að hætta, en rúmlega 22% notaði reykleysislyf sér til aðstoðar."

Föstudagur: "Rannsóknir sýna að 75% tilrauna til reykleysis án aðstoðar eða hjálparmeðala verða að engu innan viku og aðeins innan við 5% reykingamanna, sem gera tilraunir til að hætta sjálfir og án aðstoðar, eru enn reyklausir eftir heilt ár."

Litabreytingin er sko mín. 

Eftir að hafa lesið Moggann á miðvikudegi var ég virkilega stoltur að hafa hætt að reykja fyrir tólf árum án hjálparlyfja en svo á föstudegi sá ég að ég er ekkert spes; mikill meirihluti þeirra sem hætta að reykja gera það án aðstoðar.

Miðvikdagsfréttin er að vísu runnin undan rifjum lyfjafyrirtækisins Pfizer í samráði við Félag íslenskra heimilislækna en það hefur ábyggilega ekki nokkur áhrif á niðurstöðuna enda er allt satt og rétt haft eftir Dr Robert West sem er prófessor í sálfræði við UCL sem vill meina að reykingamenn þurfi stuðning í verki til að losna við nikótínpúkann. Því miður er sá stuðningur of seinn á ferðinni fyrir 70% sem hættu án stuðnings í verki, ekki satt?

Miðvikudagur: "West segir afar þýðingarmikið að reykingamenn gefi reykingar upp á bátinn á meðan þeir eru enn ungir. Fíknin sé þó ákaflega sterk og flókið fyrirbæri. Stuðningur fagmanna á borð við heimilislækna geti því skipt sköpum í því hvort tilætlaður árangur í átt til reykleysis næst eða hvort allar slíkar tilraunir fjúka út í vindinn."

Föstudagur: "Yfir 70% þeirra sem tókst að hætta að reykja fengu enga sérstaka aðstoð við að hætta, en rúmlega 22% notaði reykleysislyf sér til aðstoðar (annað hvort nikótínlyf eða Zyban).Nokkuð stór hluti þeirra sem enn reykti notaði nikótínlyf. Þetta er ekki í samræmi við leiðbeiningar um notkun slíkra lyfja."

Miðvikudagur: " Nikótínið hefur margþætta virkni á heilann. Það kallar m.a. á sterkar hvatir til að reykja, skapar nikótínhungur og framleiðir óþægileg fráhvarfseinkenni þegar heilinn hefur gengið á nikótínbirgðir sínar. Með góðum stuðningi heimilislækna og þeirra hjálparmeðala sem í boði eru nú til dags eru þó líkur á varanlegu reykleysi mun betri en ef menn ætla sér ekki að nýta þau ráð sem í boði eru."

Föstudagur: " Árið 2006 var sala nikótínlyfja gefin frjáls í Finnlandi. Þessi breyting varð til þess að verð á nikótínlyfjum lækkaði og sala jókst. Þó er ekki vitað hvort þessi söluaukning hafi haft áhrif á tíðni reykinga. Til að mynda hefur sala nikótínlyfja aukist töluvert síðustu ár í Danmörku en tíðni reykinga haldist nokkuð stöðug."

Miðvikudagur: Dr. West. „Allir reykingamenn telja sig geta hætt sjálfviljugir og án hjálpar en staðreyndin er önnur enda er nikótínfíknin bæði sterk, öflug og skæð."

Skilaboð Dr Wests eru augljós: Engin getur hætt að reykja nema kaupa lyfin sem hann er að kynna.  


mbl.is Stór hluti reykingafólks hefur reynt nýlega að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðingarlaust vélmenni

Ég hef verið að pæla þótt ég eigi engan sportbíl til að selja. Ráða þýðingarvélar við að þýða t.d, "hver á þessa bók" en í gamla daga sagði enskukennari sögur af útlendingi sem þýddi, "hot spring river this book."

Hvernig skyldi InterTran þýða setninguna? Jú, "Who river þess vegna book?" Ekki nógu gott!

Spurt er á síðunni InterTran: Is an online translation the best solution? Látum á það reyna og hér kemur þýðingin og svarið:

róbót

 

 


Leitin að tilgangi lífsins

Jennifer vill mann sem hún getur hugsað sér að fara með á elliheimili, einhvern sem er tilbúin til að laga göngugrindina hennar þegar þar að kemur. Það er allt og sumt.
mbl.is Ekkert kynlíf í hálft ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamót

crossroadsÉg stend á tímamótum. Þá er tilvalið að laga baksýnisspegilinn. Stilla hann. Horfast í augu við sjálfan sig í leiðinni áður en lagt er af stað.


Ær-Ingi

þegar vonarstjarna bændaflokksins þar sem landbúnaður hefur verið ær og kýr flokksins tekur tilvonandi fjallakóngur flokksins upp á því að skaða sig á heitu vatni eins og hver annar óviti. Björn Ingi var kúl Ís-Björn en er nú orðin óttalegur aum-Ingi eftir allt heita vatnið.  

Slysin gera sko ekki boð á undan sér.


mbl.is Björn Ingi úr Framsóknarflokki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LAUGARDAGSKLÁM

document.php?id=apa.08.00430.fig_7Þegar ég geng með hundinn minn sem er hvítur, loðin og mjúkur framhjá hóp af leikskólakrökkum eru viðbrögð þeirra alltaf þau sömu. Þau spyrja hvort þau megi ekki klappa hvíta púðlanum mínum sem er eins og smækkuð mynd af Ísbirni.

Þegar hvít og svört áreiti verða á vegi bloggara standast þeir sjaldnast freistinguna og klappa áreitunum með bloggi. Sumir eru harðhentir eins og Jens, aðrir blíðir eins og Gúrrí og enn aðrir vilja ekki einu sinni klappa en blogga um áhugaleysi sitt.

Getur verið að öll áreiti kalli fram örfá fyrirsjáanleg viðbrögð? Eru engin ný undur undir sólinni?

Þegar ég borða mína daglegu kleinu vil ég hafa hana snúna og brúna eins og í gær og fyrragær enda eru bragðkirtlar mínir íhaldssamir og fastir fyrir. En þegar ég les það sem aðrir skrifa vil ég nýtt bragð, nýjan snúning og jafnvel annan búning og einhverja galdra sem ég hef ekki upplifað áður. 

Það er fátt sem kemur mér nú orðið á óvart nema ef vera skildi brjóst kvenna. Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég sé þau, hvort sem þau eru lítil eða stór, í felum undir fatnaði, stinn eða lafandi. Ég spyr þó aldrei hvort ég megi þukla á þeim.


"HATE" UM RÆÐUM HENT ÚT

heitar umræður

 

 


LEIFTURSÓKN GEGN LOFORÐUM

skyndifriðunÞjóðverjar komu óvininum gjörsamlega í opna skjöldu með "blitzkrieg" eða leiftursókn.

Skyndifriðun er leiftursókn gegn orðheldni borgarstjórnar.

Hér eftir mun engin með fullu viti þora að leggja svo mikið sem túskilding með gati í nýbyggingar við Laugaveg eða aðra helga reiti sem eru að verða að einskonar kirkjugörðum með gömlum legsteinum úr timbri.

Skyndifriðun er annað orð yfir það fyrirbæri þegar fólk stendur ekki við gerða samninga.

Hugsum okkur verktaka sem er að pæla í að byggja við Laugaveg. Hann semur við borgaryfirvöld, fær arkitekt til að teikna og hanna hús en á síðustu stundu er öllum samningum rift í nafni skyndifriðunar.

Þótt hús geti verið mikils virði er orðheldni borgaryfirvalda margfalt meira virði. Með leiftursókn gegn samningum má rifta hverju sem er í nafni húsafriðunar og koma þeim sem hafa áhuga að byggja upp miðbæinn gjörsamlega í opna skjöldu sem gefast upp eins og óvinir þjóðverja.

Ég held að það sé kominn tími á skyndikosningar í Reykjavík.


mbl.is Skyndifriðun beitt á Laugavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEIMURINN ER KVENLÆGUR

Sá misskilningur er landlægur, gott ef ekki heimslægur að landið og heimurinn sé karllægur.

Karlar voru ekki bara stríðaldir upp af konum til að vera eins og þeir urðu, heldur voru þeir beinlínis skapaðir til að falla konum í geð með eilífri keppni hver væri sterkastur, vígfimastur og svalastur.

Allt frá fjaðurskreyttum indíánum og máluðum stríðsmönnum með bein í nefinu, til vel klæddra hermanna í flottum einkennisbúningum, hafa konur ýtt undir hegðun, framkomu og atferli karlanna sem fengu þær til að kikna í hnjáliðunum.

pquoteKonur hlæja líka að körlum og þess vegna keppa þeir í því að vera sem fyndnastir.

Ég held meira að segja að Biblían sé innblásinn af konum sem hvöttu skrifarana til dáða eins og klappstýrur og þess vegna er Guð kona, þannig séð.  

Hver ól Jesú upp? Var það ekki kona? Það var María nokkur Mey sem kenndi Jesú að líta stórt á sig, mjög stórt. Mannkynssagan hefði orðið allt öðruvísi ef María hefði sagt stráknum sínum að hann væri bara lausaleiksbarn og ekkert spes. Hún hefur svo sannarlega hvatt hann til dáða. Hvað gagn er í því að vera sonur Guðs ef móðirin gerir lítið úr syni hans?

Allar mæður mikilla leiðtoga smituðu synina af sjálfstrausti og sigurvilja og kenndu þeim að sigra heiminn. Þeir sigruðu heiminn og konur héldu áfram að hvetja þá til dáða og konurnar eignuðust svo dáðadrengi með sigurvegurunum sem endaði náttúrulega með hundrað ára stríðinu og kúgun kvenna. Þannig ræktuðu konur menn til átaka með því að falla fyrir vondu strákunum. En þá fór að renna tvær grímur á sumar konur í klappliðinu sem sögðu sig úr því og fóru að úa á karlanna.

Hvaða nörd kannast ekki við hinn sjúklegan áhuga kvenna á vondu strákunum? Já, hvers vegna voru konur svona hrifnar af vondu strákunum á meðan góðu strákarnir sem voru góðir, fengu ekki tækifæri til að vera góðir við þær, en fengu bara að vera vinir, ekki bara í fortíð, heldur líka í nútið og kannski um eilífa framtíð þrátt fyrir að aðeins hefur fækkað í klappliðinu?

Konur velja karlanna og karlarnir reyna því að vera eins og þær vilja hafa þá, og þess vegna er heimurinn kvenlægur?


TAPAÐ FUNDIÐ

Kæri Antoníus: "Ég týndi auðæfum mínum sem voru í ljósleitum verðbréfum og grænleitum hlutabréfum í góðum gír og góðu gengi núna í sumar. Síðast sá ég til auðæfa minna í Borgartúni og Wall Street. Ertu til í að blása lífi í húsnæðismarkaðinn í Bandaríkjunum heilagi Antoníus til að losa mig úr klóm fátæktar."


mbl.is Auðmenn leita til æðri máttarvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband