"HATE" UM RÆÐUM HENT ÚT

heitar umræður

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Ég var að taka eftir færslu þinni frá desember um nafnleysi. Þú nefnir Konu úr Vesturbænum. Ég þykist vita, að þú eigir við dulnefnið "Húsmóðir í Vesturbænum", sem jafnan skrifaði lesendabréf í Velvakanda í Mogganum á 7. og 8. áratugnum.

Það var almennt álitið, að sá sem ritstýrði Velvakanda, Styrmir Gunnarsson skrifaði þessi lesendabréf, enda virtist þessi "húsmóðir" vera róttæk hægrimanneskja. Sömu sögu er  að segja um önnur "lesenda"bréf, sem Styrmi var eignaður heiðurinn að. T.d. skrifaði "Yngismær á Teigunum" jafnan um stríðið í Viet Nam og þar var var að finna lofsöng um Thieu forseta S-VietNam. Yngismær á Teigunum mundi varla vera svo upptekin af þessum gaur. Einhver tók það að sér, að greina öll þessi nafnlausu bréf, sem innihéldu róttækar hægriskoðanir og komst að því að ritstíllinn væri sá sami alls staðar, eignaður Styrmi. Það eina, sem var birt undir nafni fjallaði um hversdagshluti eins og seinkun á strætisvögnum eða gamla mjólk í mjólkurbúðum.

Á 7. áratugnum og byrjun 8. áratugarins var Mogginn róttækt hægriblað, sem birti gagnrýnislaust allt sem kom frá bandarískum yfirvöldum, m.a. það að Salvador Allende, sem CIA lét myrða, hefði framið sjálfsmorð. Aldrei voru neinar  vinstrisinnaðar skoðnir birtar, ekki frekar en það væru hægrisinnaðar skoðanir í Þjóðviljanum. Á þeim tíma var Tíminn leiðinlegt og litlaust flokksblað Framsóknar og Vísir birti hvunndagsfréttir og var óflokksbundið að öðru leyti.

Þegar Matthías Jóhannesen varð ritstjóri breyttist þetta. Þá voru skoðanaskipti allt í einu leyfð og birt óritskoðuð. Þetta var algjör nýjung í íslenzkri blaðamennsku. Allt í einu varð Mogginn vinsæll og ekki aðeins út af dánarfregnunum og eftirmælunum. Þjóðviljinn og Tíminn biðu þess aldrei bætur og lognuðust af árum seinna eins og kunnugt er. 

Vendetta, 14.1.2008 kl. 22:26

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Takk fyrir fróðlegan pistil.

Benedikt Halldórsson, 15.1.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: halkatla

vendetta er svo mikill viskubrunnur, það er ótrúlegt!

halkatla, 24.1.2008 kl. 22:50

4 Smámynd: halkatla

pistillinn þinn Heimurinn er kvenlægur og svör við honum eru hrein snilld, það var bara kominn tími á að hægt væri að kommenta, annars hefði ég sagt þetta þar

halkatla, 24.1.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 145762

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband