Mánudagur, 22. nóvember 2010
Verjendur
Í umdeildum umræðum þurfa einhverjir að taka að sér að sækja og verja mál, ekki ósvipað og hjá dómstólum.
Kannski er krafan um almenna niðurfærsla skulda dauðadæmd og óframkvæmanleg en einhverja þarf til að verja hana og fylgja henni eftir. Marínó G. Njálsson tók að sér að fylgja eftir kröfunni sem margir telja ekki gerlega. Með því að draga einkaskuldir Marinós og eiginkonu hans inn í umræðuna er verið að ýja að því krafa Marinós sé ekki marktæk, vegna eiginhagsmuna. En svo vill til að krafan á stuðning fjöldamargra, hundruða, jafnvel þúsunda.
Hver er hæfur til að benda á kjör fátækra? Hver er hæfur til að mæla með lægri sköttum?
Til hvers að taka þátt í umræðum ef verjandi eða sækjandi málsins er gerðir tortryggilegir?
„Umræður“ um meinta eiginhagsmuni eru aðeins til þess fallnar að grafa undan lýðræðislegri og sjálfssagðri umræðu sem þarf að fara fram. Fjölmiðlar hafa engum skyldum að gegna öðrum en að upplýsa mál, ekki koma í veg fyrir að fólk flytji mál opinberlega.
Dægurmál | Breytt 23.11.2010 kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 21. nóvember 2010
Góðkynja illdeilur
Deilur eru góð leið til að viðhalda áhuga og þekkingu á málum og eru því til góðs. Þegar „allir“ eru „sammála“ tekur sinnuleysi og doði við.
Þegar mál hætta að valda deilum hættir fólk að tala saman um þau, en umræður leiða til rökhugsunar, enda eina færa leiðin til að sigra! Það er jú bannað að ráðast á þá sem eru ósammála með öðrum vopnum en rökhugsun og staðreyndum. Rökræður eru æfingar í gagnrýnni hugsun. Deilur eru því góðar æfingar í hugsun.
Hver kynslóð verður að fá æfa sig og komast sjálf að niðurstöðu. Jafnvel um mál sem við teljum vera afgreidd fyrir aldir alda.
Ef ekki eru deilur um mál er það yfirleitt vegna þessa að fólk þorir ekki að tjá sig. Mál geta lokast inni hjá „fagaðilum“ sem oft eru aðeins launaðir starfsmenn tiltekinnar umdeildar hugmyndafræði. Ég er ekki að tala um tannlækningar! Við deilum ekki hversu langt er til Þorlákshafnar, við mælum vegalengdina. En um ótal mál önnur má deila um. Jafnvel hvort heimurinn hafi verið hannaður eins og sumir halda fram. Deilurnar auka áhuga fólks á þróun lífsins en fjölgar alls ekki sköpunarsinnum!
Mál sem eru á válista fer fjölgandi. En þá ákveða „sérfræðingar“ að búið sé að komast að endanlegri niðurstöðu og því óþarft að ræða málin frekar. Blaðamenn, rithöfundar og hugsandi stéttir þora ekki annað en að fylgja rétttrúnaðinum.
Engin mál eru svo flókin og viðkvæm að meðalgreint fólk geti ekki skilið þau í öllum aðalatriðum og myndað sér skoðun án þess að samfélagið fari á hliðina. Það er engin hætta á að deilur um viðkvæm mál leiði okkur til myrkra miðalalda, síður en svo.Þar sem þykir sjálfsagt efast er engin hætta á fasisma og ranglæti. Þegar mál eru hinsvegar innsigluð og gerð heilög tekur almennt þekkingarleysi við vegna skorts á rökæfingum.
Við munum aldrei verða á eitt sátt um mál sem á annað borð er hægt að efast um. Ef við hættum að spyrja spurninga, ef við hættum að viðra efann opinberlega fer hann neðanjarðar og getur sprottið fram sem ógn löngu síðar. Spurningar sem ekki er varpað fram, er ekki svarað. Efasemdum sem ekki fá að koma fram, er ekki eytt.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 30. september 2010
Ef leyfilegt að brjóta rúður í þinghúsinu núna?
|
Stefnir í fjöldamótmæli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt 21.11.2010 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 16. mars 2010
Lánsöm þjóð?
|
317.630 bjuggu hér um áramótin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 24. janúar 2010
Kók og kraftaverk
Coca Cola samsteypan ætti að leggja stórfé í hjálparstarf, ekki bara á Haíti heldur út um allan heim, svona til að launa hinum 25 ára gamla Haítíbúa greiðan þegar hann þakkaði Coka Cola lífgjöfina. Hann þurfti ekki að minnast á drykkinn sem allstaðar er seldur enda skiptir ekki máli hvaða vökva hann innbyrti í prísundinni. Hann drakk líka bjór án Þess að tegundarinnar væri getið og borðaði nafnlausar kökur.
Segjum sem svo að hann hefði nefnt bjórtegundina Prestige en það er einmitt vinsæll bjór frá Haítí. Hafa verður í huga að maðurinn var nær dauða en lífi þegar hann fannst og varla fær um að tala. Er líklegt að fréttamenn segðu að hann lifði 11 sólarhringa vist í rústunum með því að drekka bjórinn Prestige? Ég held ekki.
Það er keppst um að búa til fyrirsagnir, ein er svona: "Quake Survivor Lived On Beer For 11 Days", en í annarri er talað um kökur og bjór en ekki minnst á Coca Cola "Survivor lived on beer and cookies".
En það er óhætt að segja að Coca Cola hefur aldrei komist eins nálægt því að gera kraftaverk og einmitt þessa daganna: "Miracle after Haiti search efforts end: Man found after drinking Coca-Cola to survive for 11 days"
Svona fyrirsagnir gera að minnsta kosti kraftaverk í sölu á kók.
|
Lifði á Coca-Cola |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. janúar 2010
Hvaða verslun selur mynd af forseta Íslands?
Mér er skapi næst að kaupa mynd af Ólafi forseta og hengja hana í upp í stofunni hjá mér.
|
Ólafur í kröppum dansi á BBC |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 5. janúar 2010
Áramótaskaupið
Sú ákvörðun forseta Íslands að skrifa ekki undir Icesafe mun ekki gleymast um aldir og verður einn minnistæðasti atburðurinn í Íslandssögunni.
En hvað varð til þess að Ólafur tók þessa sögulegu ákvörðun?
Í gamla daga sá ég kvikmynd sem átti að gerast í seinni hamstyrjöldinni. Sögð var saga af harðsnúnum herflokki sem samanstóð af örfáum en hrikalega hæfum harðjöxlum sem breyttu gangi heimstyrjaldarinnar með einni tiltekinni aðgerð.
Ef gerð væri (Hollywood) kvikmynd um ákvörðun forseta að vísa málinu þjóðarinnar myndi ég vilja að þáttur Áramótaskaupsins yrði rækilega tíundaður og harðjaxlarnir, konur og karlar, sem tókst að svívirða forseta vor og embættið, með tilvísun í myndina Hangover verði hetjur myndarinnar og þúfan sem velti við vagni ósigursins sem blasti við þjóðinni. Við það gat forseti vor ekki unað.
Því er þrefalt húrra fyrir Skaupinu viðeigandi.
Húrra, húrra, húrra!
|
Staðfestir ekki Icesave-lög |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. september 2009
Ögmundur flýr svartholið
Ég tel að Ögmundur geri sér grein fyrir að Icesafe samningurinn er svarthol á blaði eins og í þessu MYNDBANDI. Við fyrstu sýn er ávinningurinn einhver en að lokum mun svartholssamningurinn gleypa okkur.
|
Ögmundur segir af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
Oj, oj
Má bjóða ykkur taðreyktan lax sem var með hjartakvilla í lifanda lífi og hefði drepist úr offitu ef honum hefði ekki verið slátrað?
|
Helmingur eldislaxa með hjartakvilla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Það er svart og sykurlaust framundan!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Karlar með þakskegg
Karlar eru brúklegir til margs. Þeir eru eiginlega að verða fjölnota eins og svissneskur vasahnífur sem er með allt til alls, enda færist það í vöxt að konur hafi karla í vasanum og eru teknir upp þegar skera þarf á alls konar hnúta!
|
Vilja húslega karla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Tannhjól ársins!
Hverjum datt í hug að taka sum tannhjól fram yfir önnur í leiksýningu sem er þegar best lætur einsog vel smíðuð klukka, með þúsund litlum pörtum sem vinna saman sem ein órofa heild.
Kannski ættum við að velja stjörnu ársins á himinhvolfinu. Við gætum tilnefnt Júpíter, Mars og Plútó.
Áhorfandi.
|
Utan gátta fékk flest verðlaun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. maí 2009
Óvinsæl ríkisstjórn?
Ég man ekki eftir eins óvinsælli ríkisstjórn - sem ekki hefur verið mynduð! Það er nokkuð ljóst að óvinsældir hennar munu aukast verulega eftir að hún verður sett saman og málefnasamningurinn lesinn upphátt.
|
Furða sig á ummælum ráðherra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 27. apríl 2009
Bandalag eymdar og volæðis?
Nú kemur sér vel fyrir Spánverja að vera í bandalagi Evrópu í sínu hruni, öfugt við okkur Íslendinga sem vorum einir á báti í okkar hruni. Ef aðild að ESB og evran hefði bjargað okkur, af hverju bjargar ekki evran og ESB, Spáni? Hver er ávinningur Spánverja með hruninn húnsæðismarkað og nálægt 20% atvinnuleysi? Hvað var það sem þeir fengu sem við misstum af? Jú, þeir fengu að vera með í að taka rangar ákvarðanir sem þeir létu bara ekki yfir sig ganga án ræðuhalda og fundahalda í Brussel.
|
Elítan vill í ESB |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 17. apríl 2009
Hvað ef Steingrímur J. væri Sjálfstæðismaður?
Hvað ef Steingrímur J. væri Sjálfstæðismaður? Er það ekki blekking að það skipti meginmáli fyrir atvinnulífið og þessa kraftmiklu þjóð hvaða þingmenn sitja á þingi? Hvaða mali skiptir hver úrslit næstu kosninga verða eða hvort kona er forsætisráðherra eða ekki, jafnvel þótt hún heiti Jóhanna? Sjálfstæðisflokkurinn þakkaði sér fyrir góðu lífskjörin og að sjálfsögðu er honum kennt um heimskreppuna! Gott á hann! Stjórnarandstaða hverju sinni rekur öfluga hræðslupólitík en stjórnarflokkar reyna að auka bjartsýni fólks.
Kreppan er alþjóðleg og hún hefði skollið á íslandi hverjir svo sem hefðu verið í brúnni! Jú, það er áherslumunur á flokkunum. í gær var deilt um rafrænar sjúkraskrár! Og einhver ráðherra bjargaði lífi einhver kálfs sem heitir Lif en sem betur fer skiptir það litlu máli fyrir okkar líf. Næsta ríkisstjórn Samfylkingar og VG munu gera metnaðarfulla fjögurra ára áætlun sem hljómar vel en reynist vel eða illa eftir því hvernig aðrir vindar blása.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)

Einar Sveinbjörnsson
Svava frá Strandbergi
Óli Björn Kárason
Jón Axel Ólafsson
Kristján Hreinsson
Sigurður Sigurðsson
Bjarni Harðarson
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Eyþór Arnalds
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Vestfirðir
Margrét St Hafsteinsdóttir
Ásgeir R. Helgason
Ásta Möller
Pálmi Gunnarsson
Andrés Magnússon
Haukur Viðar
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
Valgerður G.
Sigurlaug B. Gröndal
Jóna Á. Gísladóttir
gudni.is
Vilhelmina af Ugglas
Kallaðu mig Komment
Sigríður Jónsdóttir
Hans Haraldsson
Deux
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Bergur Thorberg
Heidi Strand
Guðlaug Helga Ingadóttir
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
Ólafur fannberg
pirrhringur
Júlíus Valsson
Svanur Sigurbjörnsson
Guðmundur H. Bragason
Hlynur Þór Magnússon
Haukur Nikulásson
Guðmundur Jónas Kristjánsson
Sigurjón Sigurðsson
Kolbrún Baldursdóttir
Gunnar Th. Gunnarsson
Örvar Már Marteinsson
Arnar Pálsson
Ágúst Dalkvist
Brosveitan - Pétur Reynisson
Bwahahaha...
Fríða Eyland
Guðsteinn Haukur Barkarson
Helga Guðrún Eiríksdóttir
Himmalingur
Jón Steinar Ragnarsson
Karl Tómasson
kiza
Kolgrima
Loftur Altice Þorsteinsson
Páll Vilhjálmsson
Promotor Fidei
Ragnar Bjartur Guðmundsson
Rósa Aðalsteinsdóttir
Sigurður Hólmar Karlsson
TARA
Víðir Ragnarsson


