Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 15. apríl 2009
Vel heppnuð hústaka
Þessi hústaka vakti mikla athygli og er ein vel heppnaðasta aðgerð til að vekja okkur til umhugsunar. En jafnframt stendur lögreglan sig vel og fer ekki í manngreinarálit og lætur almenningsálitið ekki villa sér sýn. Hún fer aðeins eftir lögum landsins.
Í vegi fyrir glæsihúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Miðvikudagur, 15. apríl 2009
Styrkir
Það tekur engin stjórnmálamaður við tugum milljóna nema að vandlega íhuguðu máli, og býr þannig um hnútanna að gefandann hafi ekki áhrif á ákvarðanatöku og stefnumótun. Ef tíminn leiðir hins vegar í ljós að styrkirnir villtu mönnum sýn, má segja í ljósi reynslunnar að þeir hafi verið óeðlilegir. Ef þeir höfðu hins vegar engin áhrif á stefnumótun flokksins eða starf, er ekkert óeðlilegt við þá.
Ingibjörg: Styrkir til flokksins óeðlilegir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. apríl 2009
Vefþjóðviljinn les hugsanir
Ég las hugsanir mínar í Vefþjóðviljanum sem þó er ekki skyggn miðill.
Flokkarnir eru nú sannkallaðar ríkisstofnanir. Að loknum þingkosningunum eftir tvær vikur munu fjórar ríkisstofnanir eiga fulltrúa á Alþingi, aðrir ekki.
Landsbankinn veitti 2 styrki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 10. apríl 2009
Gefandi vinátta
Sagt er að góður vinur geti gert kraftaverk. En það þarf að rækta vináttuna, hringja, hittast, hringja aftur, kíkja aftur í heimsókn, leggja 30 milljónir inn á reikning.
Vináttan er svo gefandi.
-------o-------o-------o-------
Atburðarás síðustu daga er svo farsakennd að ég held einhver hafi skrifað kreppuna og okkur verði bráðum tilkynnt eins og þegar Orson Welles baðst afsökunar á áhrifamætti innrásarinnar frá Mars, að kreppufarsinn sé aðeins leikrit sem hafi líka farið úr böndunum.
Ömurlegar fréttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 31. mars 2009
Kreppan og Súperman
Þegar leitað er skýringa á þeirri efnahagslegri ógæfu sem dunið hefur yfir okkur, er vinsælt að kenna skúrkunum um. Jú, sko, þeim sem komu kreppunni af stað! Kreppan hlýtur að vera einhverjum að kenna. Eva Joly ýtir undir þá trú að orsök kreppunnar á Íslandi séu afbrot glæpamanna sem eigi að fá þunga dóma í samræmi við dýpt kreppunnar.
En er ekki kreppan alþjóðlegur faraldur og þjóðir með veikustu varnirnar verða harðast úti? Áttu stjórnvöld að styrkja varnirnar? Að sjálfsögðu. En stjórnvöld eru ekki alsjáandi og alvitur, ekki frekar en venjulegt fólk, hvort sem það vinnur hjá hinu opinbera eða í banka. Jafnvel fólk sem starfar við eftirlit er ekki alviturt! Þess vegna var í sjálfu sér eðlilegt að fólk með venjulegan heila tæki ákvarðanir sem við súpum nú seyðið af. Það er ekki glæpur að gera mistök, eða hvað?
En allra verstu mistökin voru að aftengja frelsi og ábyrgð. Þar sváfu margir heilar á verðinum.
Það er semsagt í tísku að láta sem flókinn veröld sé einföld, þá verður manngangurinn einfaldur eins og í sögunni af Súpermann en bjargvætturinn góði varð einmitt til eftir heimskreppuna miklu á síðustu öld. Einföldunin er að líta svo á, að allt það vonda sem hendir okkur sé ávallt illum öflum að kenna. Þar er engin óheppni, tilviljanir eða mistök, ekkert er flókið og allt er einfalt.
Skúrkarnir og Lex Luthor (Davíð Oddson), sem komu okkar á kaldan klaka, eru ekki bara ljótir á sálinni heldur aðhyllast þeir vonda hugmyndafræði af því að þeir eru svo vondir! Góðu stjórnvöldin eru ekki bara óspillt og góð eins Súpermann, þau eru líka alvitur og alsjáandi, öfugt við stjórn skúrkana sem sjá bara eigin nafla sökum græðgi og siðblindu. Hinir góðu geta afturámóti stjórnað öllu samfélaginu eins og það leggur sig og fengið ýmsa útlenda ofurhetjuverktaka á tímakaupi til að uppræta glæpi skúrkanna.
Kannski munu einhverjir fara í fangelsi til viðbótar við þá sem þar eru fyrir en kreppur orsakast ekki af glæpum, þótt slíkt vilji brenna við í teiknimyndasögum.
Dapurlegar fréttir af Samson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. mars 2009
Hvað er í boði?
Af hverju ekki að kjósa fyrst um aðild að ESB og svo aftur þegar þegar aðildarviðræðum er lokið?
Aðild að ESB snýst ekki um hvað hægt er að fá mikið fyrir lítið. Aðildin er varanleg. Hún er sameining.
Það er miklu eðlilegra að samþykkja fyrst aðild með fyrirvara um að samningurinn verði ásættanlegur. Það er lítið mál að fá fólk til að samþykkja aðildarviðræður um hvað sem er með þeim "rökum" að við getum ekki neitað fyrr en við sjáum hvað er í boði!
Ef almenningur væri spurður um hvort við ættum að sækja um að verða 53 ríki Bandaríkjanna er ekki víst að svarið yrði fyrirsjáanlegt. Ekki ef linnulaus áróður allra fjölmiðla snerist um að við ættum fyrst að fara í aðildarviðræður og sjá hvað hægt væri að fá mikið fyrir lítið!
Hvað er í boði með aðildarviðræðum við ESB? Svar: Aðild að ESB. Um það á að kjósa.
Flestir vilja aðildarviðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Ókeypis kynning á frambjóðanda
Hver er fréttin? Fyrirsögnin lofar góðu, "Margt líkt með Íslandi og fyrrum Afríkunýlendum" og maður á von á einhverju bitastæðu frá sérfræðingi í skuldastýringu Afríkuríkja en svo kemur í ljós að "vitnið" er frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar.
Í hverju einasta flokki eru fátækir frambjóðendur sem eru jafnframt sérfræðingar og fræðimenn sem hægt væri að fá til að tala illa um hina flokkana eftir pöntun. Þó ekki nema til að vekja athygli á sjálfum sér og sínu framboði.
Hagfræðingurinn og sérfræðingurinn vék fyrir frambjóðandanum þegar hann komst að þessari merkilegu niðurstöðu: "að hér á landi hafi verið við völd spilltur stjórnmálaflokkur með nánast alræðisvald sem hafi rústað stjórnsýslunni."
Hér er ekki frétt á ferðinni, heldur ókeypis kynning á frambjóðanda.
Ísland líkist fyrrum Afríkunýlendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 23. febrúar 2009
Höskuldur er þröskuldur
Lausn ekki fundin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 5. febrúar 2009
Hvalreki
Eftir því sem fróðir menn telja er ekkert því til fyrirstöðu að hefja hvalveiðar nema Steingrímur J. Sigfússon sem er að tefja málið vegna formgalla!
Ekki hefur dregið úr ferðamannstraumi til Íslands vegna hvalveiða. Þær eru atvinnuskapandi og bráðnauðsynlegar. Það eru ENGIN haldbær rök gegn hvalveiðum. Hins vegar verður því ekki móti mælt að mörgum þykir vænt um hvali og líta á þá sem dúllur sem eigi að vernda fram í rauðan dauðan.
Ef Steingrímur kemur í veg fyrir veiðarnar í miðri kreppunni, þegar nóg er af hvölum í sjónum og margar vinnufúsar hendur sem vantar vinnu, leggst hann gegn þeim sem eru að reyna að leggjast á eitt að endurreisa Ísland.
Steingrímur J. mætir á fund um hvalveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. febrúar 2009
Skákklukku í Kastljósið strax
Ekkert er leiðinlegra en þegar tveir viðmælendur í Kastljósi keppast um að tala hvorn annan í kútinn með munnræpu. Ég legg til að fenginn verði skákklukka í Kastljósið. Klukkan gengur á ræðumann eins og á skákmann sem er að hugsa næsta leik. Sá sem talar of mikið fellur á tíma og því á sá lokaorðin sem segir minna í upphafi. Þá gilti að segja sem mest á sem stystum tíma.
Orðaskak yrði að orðaskák.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sko
Bloggvinir
- Einar Sveinbjörnsson
- Svava frá Strandbergi
- Óli Björn Kárason
- Jón Axel Ólafsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Kristján Hreinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Bjarni Harðarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Vestfirðir
- Björn Heiðdal
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Möller
- Pálmi Gunnarsson
- Andrés Magnússon
- Haukur Viðar
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Valgerður G.
- Sigurlaug B. Gröndal
- Jóna Á. Gísladóttir
- gudni.is
- Vilhelmina af Ugglas
- Kallaðu mig Komment
- Herra Limran
- Sigríður Jónsdóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Bergur Thorberg
- Heidi Strand
- G.Helga Ingadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Ólafur fannberg
- Forvitna blaðakonan
- halkatla
- Júlíus Valsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Guðmundur H. Bragason
- Hlynur Þór Magnússon
- Haukur Nikulásson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Grazyna María Okuniewska
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Örvar Már Marteinsson
- Arnar Pálsson
- Ágúst Dalkvist
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Fríða Eyland
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Himmalingur
- Jón Steinar Ragnarsson
- Karl Tómasson
- kiza
- Kolgrima
- Lady Elín
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Páll Vilhjálmsson
- Promotor Fidei
- Ragnar Bjartur Guðmundsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Víðir Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar