Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 30. september 2009
Ögmundur flýr svartholið
Ég tel að Ögmundur geri sér grein fyrir að Icesafe samningurinn er svarthol á blaði eins og í þessu MYNDBANDI. Við fyrstu sýn er ávinningurinn einhver en að lokum mun svartholssamningurinn gleypa okkur.
Ögmundur segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
Oj, oj
Má bjóða ykkur taðreyktan lax sem var með hjartakvilla í lifanda lífi og hefði drepist úr offitu ef honum hefði ekki verið slátrað?
Helmingur eldislaxa með hjartakvilla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009
Orðspor náttúrunnar er óskaddað.
Jöklarnir bráðnuðu ekki í hruninu, það lak ekki úr Bláa Lóninu. Ferðamenn hættu ekki að koma. Hafið umhverfis Ísland hélt velli og fiskafurðir héldu áfram að seljast. Raforkan var söm, fallvötnin söm. Hverirnir kólnuðu ekki. Vatnið mengaðist ekki og Björk var ekki hrópuð niður á tónleikum.
Fólk á viðskipti við okkur vegna eigin hagsmuna. Í hvaða tilvikum ætti "orðspor Íslands" að vera til trafala í viðskiptum? Jú, þegar fyrirtæki eru ekki samkeppnishæf.
Ef kenningin um "orðspor Íslands" stæðist hefði ferðamönnum átt að fækka milli ára. Ekki væri þorandi fyrir fólk að fara til lands með slíkt óorð á sér! En ferðamennirnir vita að ekkert hefur breyst nema nema gengi krónurnar sem gaf þeim tækifæri til að láta draum sinn rætast, að ferðast til Íslands, fallegu eyjunnar í norðri með vingjarnlegum og hjálpsömum íbúum.
Vörumerkið Ísland stórskaddað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Það er svart og sykurlaust framundan!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Karlar með þakskegg
Karlar eru brúklegir til margs. Þeir eru eiginlega að verða fjölnota eins og svissneskur vasahnífur sem er með allt til alls, enda færist það í vöxt að konur hafi karla í vasanum og eru teknir upp þegar skera þarf á alls konar hnúta!
Vilja húslega karla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. júní 2009
Kexrugluð skattheimta
Ef skattar á "óhollustu" drægju úr neyslu hennar væri ekki hægt að áætla skatttekjur upp á tvo og hálfan milljarð. Þannig treysta stjórnvöld því að fólk haldi áfram að úða í sig kexi og þamba gos sem skilar milljörðum í ríkiskassann.
Fyrir hugmyndaríka skattheimtumenn er gósentíð framundan. Allt sem er óþarft og óhollt fer í 24,5%.
Þannig mætti hafa tvö skattþrep fyrir lærissneiðar, 7% fyrir kjötið en 24,5% fyrir fituna og beinin.
Fallhlífarstökk færi í 24,5% en allt flug í 7%, það er nefnilega algjör óþarfi að stökkva úr flugvél á miðri leið enda stórhættulagt athæfi sem skattleggja skal eftir því.
Svona mætti lengi telja - fram til skatts.
Skattur á kex og gos í 24,5% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Tannhjól ársins!
Hverjum datt í hug að taka sum tannhjól fram yfir önnur í leiksýningu sem er þegar best lætur einsog vel smíðuð klukka, með þúsund litlum pörtum sem vinna saman sem ein órofa heild.
Kannski ættum við að velja stjörnu ársins á himinhvolfinu. Við gætum tilnefnt Júpíter, Mars og Plútó.
Áhorfandi.
Utan gátta fékk flest verðlaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. maí 2009
Óvinsæl ríkisstjórn?
Ég man ekki eftir eins óvinsælli ríkisstjórn - sem ekki hefur verið mynduð! Það er nokkuð ljóst að óvinsældir hennar munu aukast verulega eftir að hún verður sett saman og málefnasamningurinn lesinn upphátt.
Furða sig á ummælum ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 27. apríl 2009
Bandalag eymdar og volæðis?
Nú kemur sér vel fyrir Spánverja að vera í bandalagi Evrópu í sínu hruni, öfugt við okkur Íslendinga sem vorum einir á báti í okkar hruni. Ef aðild að ESB og evran hefði bjargað okkur, af hverju bjargar ekki evran og ESB, Spáni? Hver er ávinningur Spánverja með hruninn húnsæðismarkað og nálægt 20% atvinnuleysi? Hvað var það sem þeir fengu sem við misstum af? Jú, þeir fengu að vera með í að taka rangar ákvarðanir sem þeir létu bara ekki yfir sig ganga án ræðuhalda og fundahalda í Brussel.
Elítan vill í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 17. apríl 2009
Hvað ef Steingrímur J. væri Sjálfstæðismaður?
Hvað ef Steingrímur J. væri Sjálfstæðismaður? Er það ekki blekking að það skipti meginmáli fyrir atvinnulífið og þessa kraftmiklu þjóð hvaða þingmenn sitja á þingi? Hvaða mali skiptir hver úrslit næstu kosninga verða eða hvort kona er forsætisráðherra eða ekki, jafnvel þótt hún heiti Jóhanna? Sjálfstæðisflokkurinn þakkaði sér fyrir góðu lífskjörin og að sjálfsögðu er honum kennt um heimskreppuna! Gott á hann! Stjórnarandstaða hverju sinni rekur öfluga hræðslupólitík en stjórnarflokkar reyna að auka bjartsýni fólks.
Kreppan er alþjóðleg og hún hefði skollið á íslandi hverjir svo sem hefðu verið í brúnni! Jú, það er áherslumunur á flokkunum. í gær var deilt um rafrænar sjúkraskrár! Og einhver ráðherra bjargaði lífi einhver kálfs sem heitir Lif en sem betur fer skiptir það litlu máli fyrir okkar líf. Næsta ríkisstjórn Samfylkingar og VG munu gera metnaðarfulla fjögurra ára áætlun sem hljómar vel en reynist vel eða illa eftir því hvernig aðrir vindar blása.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Sko
Bloggvinir
- Einar Sveinbjörnsson
- Svava frá Strandbergi
- Óli Björn Kárason
- Jón Axel Ólafsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Kristján Hreinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Bjarni Harðarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Vestfirðir
- Björn Heiðdal
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Möller
- Pálmi Gunnarsson
- Andrés Magnússon
- Haukur Viðar
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Valgerður G.
- Sigurlaug B. Gröndal
- Jóna Á. Gísladóttir
- gudni.is
- Vilhelmina af Ugglas
- Kallaðu mig Komment
- Herra Limran
- Sigríður Jónsdóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Bergur Thorberg
- Heidi Strand
- G.Helga Ingadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Ólafur fannberg
- Forvitna blaðakonan
- halkatla
- Júlíus Valsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Guðmundur H. Bragason
- Hlynur Þór Magnússon
- Haukur Nikulásson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Grazyna María Okuniewska
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Örvar Már Marteinsson
- Arnar Pálsson
- Ágúst Dalkvist
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Fríða Eyland
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Himmalingur
- Jón Steinar Ragnarsson
- Karl Tómasson
- kiza
- Kolgrima
- Lady Elín
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Páll Vilhjálmsson
- Promotor Fidei
- Ragnar Bjartur Guðmundsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Víðir Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar