FRJÁLSLYNDIR ÓÞARFIR?

þegar helsta baráttumál frjálslyndra er; að leggja ungan mann niður, ala á ótta við útlendinga og leggja besta veiðistjórnunarkerfi í heimi niður, veltir maður því fyrir sér hvort ekki sé tími til kominn fyrir frjálslynda að leggja sig.
mbl.is Opnun landamæra greiddi ekki götu glæpamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VEFURINN MIKLI

Moggi allra landsmanna.

Nú er mogginn, moggi allra landsmanna byrjaður að birta tölur úr heimilisbókhaldi Britneyju Spears. Einstakir liðir í bókhaldi hennar koma okkur svo sannarlega við og verður spennandi að fylgjast með einstökum liðum fram eftir vetri. Hversu mörg skópör á hún? Hvað á hún margar nærbuxur, buxur, boli og annað glingur? Gaman væri einnnig að vita hversu marga metra af skeinipappír daman brúkar á mánuði? Þvær hún sér um hendurnar á eftir? Hversu oft dettur hún í það? Hversu oft gerir hún do do? Með hverjum og af hverju?

vefurinn mikli

 Veraldarvefurinn.

Þessar fréttir moggans af Birtneyju er gott dæmi um það sem engum hefði dottið í hug fyrir 13 árum, hvað þá fyrir 50 árum, að væri mögulegt. Hverjum hefði dottið í hug þegar fyrstu öldur ljósvakans brotnuðu á strönd 21. aldarinnar að við gætum sagt okkar skoðun á fréttunum úr einskonar símarafmagnsritvél sem næstum því allir landsmenn kynnu á og hefðu aðgang að. Svo hefur tækninni fleygt fram að nú geta lesendur netútgáfu Morgunblaðsins bætt einhverjum gullkornum við frá eigin brjóstum um Britneyju. Alþýða þessa lands, til sjávar og sveita, getur sagt skoðun sína umbúðalaust og milliliðlaust um stúlkukindina.

Honum Guðmundi bónda í sveitinni hefði þótt gaman af þessari nýju tækni.


mbl.is Britney kaupir föt fyrir milljón á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÓKABRENNA

bókabrenna

SÁTTAGJÖRÐ Í VERKI

Sáttagjörð

Hilmar: Blessaður, hvað segir kallinn.

Prestur: Allt þetta fína. Hvernig er mamma þín í gigtinni?

Hilmar:  Hún er slæm...ég var að pæla...hvort þú gætir ekki gift okkur.

Prestur: Hvenær?

Hilmar:  Ég var að spá í 8. ágúst á næsta ári, það er að vísu á föstudegi, ertu nokkuð uppbókaður.

Prestur: Bíddu aðeins...nei, ég er laus þá.

Hilmar:  Kannski klukkan 8 um morguninn.

Prestur: Það ætti að vera í lagi.

Hilmar:  Frábært.

Prestur: Hvers son ertu aftur Hilmar.

Hilmar:  Ég er Jónsson

Prestur: Já, auðvitað, ég man vel eftir pabba þínum heitnum. Hvað heitir sú lukkulega?

Hilmar:  Karl Hansson

Prestur: Er þetta karl?

Hilmar: Já, kannastu við hann

Prestur: Nei, reyndar ekki, en því miður get ég ekki gift ykkur, því miður...mér þykir það leitt.

Hilmar:  Bíddu, þú skírðir mig, fermdir mig....af hverju ekki?

Prestur: Ég gifti bara konu og karl.

Hilmar:  En ekki mig og Karl

Prestur: Mér þykir þetta mjög leitt en samviska mín segir nei, því miður, en ég veit til þess að nokkuð margir prestar þjóðkirkjunnar gefa saman karla.

Hilmar:  Hvaða prestar?

Prestur: Ég er nú ekki með þá í kollinum.

Hilmar:  Ertu með lista?

Prestur: Nei, því miður hefur slíkur listi ekki verið gefinn út.

Hilmar:  Ert að segja að ég eigi að fara í símaskránna og hringja og hringja þar til ég fæ já.

Prestur: Já.

Hilmar:  Þú færð sko ekki að jarða mig, vertu blessaður.


mbl.is Stóri sannleikur eða stjórnarskrárbrot?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VOL OG VÆL

Iss, hvaða væl er þetta. Það er nóg að kaupa ódýrar bastkörfur á láta þær ganga á samkomum. Eða eru kannski engar samkomur? Spyr sá sem ekkert þekkir til ásatrúar en veit þó að peningar vaxa ekki á trjánum.


mbl.is Ásatrúarfélagið fær ekki aukin framlög úr ríkissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1501

Gleymdi að skrifa undir, geri það hér með.

Gangi ykkur vel og baráttukveðjur.

Benedikt Halldórsson

P.S. Hélt að búið væri að loka listanum, en svo var ekki gat skrifað undir, er númer 1770 sem er góð tala.


mbl.is Öryrkjar fram til orrustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

datt oní holuna ha ha ha

Alveg er þetta dæmigert fyrir þetta kvenfólk, að detta ofan í eina gatið sem hægt var að detta ofaní en sjálfur er ég eyjapeyi og veit mínu viti. Hef veitt lunda og tekið í höndina á Árna. Það er fallegt í eyjum, sérstaklega á vorin en þá er ekki lengur vetur. Það er fáránlegt að afskrifa göngin. Konan sem datt ofan í holuna gat bara sjálfri sér um kennt enda alltof mjó ha ha ha ha. Við eyjapeyjar eru með húmorinn fyrir neðan nefið.
mbl.is Fyrirsæta féll ofan í gat á sviðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI REKA ÞJÁLFARANN, LESIÐ BÓKINA „ERTU VISS.“

Í þessu tilfelli er sennilega bara um óheppni að ræða. Tilviljanir eru ekki á ábyrgð þjálfara. 

Í bókinni „Ertu viss“ eftir Thomas Gilovicher, er talað um klasa; þegar sama gerð, hvort sem það eru rauðar kúlur í krukku fullri af mislitum kúlum, margir sigrar í röð eða mörg töp í röð í íþróttum klasast saman.

Þessi umtalaði tapleikur stafar ekki af lélegum mannskap eða lélegum þjálfara eða skorti á að leikmenn líti í eigin barm, enda er liðið gott.

Tapið er hrein tilviljun. Varla er íslenska landsliðið í fótbolta laus undan oki tilviljana?

Ef forráðamenn KSÍ tækju sig til og köstuðu teningum í nokkra klukkutíma sæu þeir að tap íslenska landsliðsins er tilviljun. Ef niðurlægjandi „tap“ er númer fimm á teningnum mun slíkt „tap“ koma upp í eitt af hverjum sex skiptum að meðaltali. En það er bara ekki svo einfalt. Talan fimm er óútreiknanleg og kemur alls ekki upp í sjötta hvert skipti, bara alls ekki. Einstaka sinnum kæmi hún meira að segja upp nokkrum sinnum í röð, það sama gildir reyndar með hinar tölurnar. Hvað gæti KSÍ gert í því? Rekið heilladísirnar?

Bókin „Ertu viss“ er gott lesefni til að draga úr hinni miklu þjálfarahjátrú og er líka góð vörn gegn ýmsum öðrum bábiljum.


mbl.is „Þjálfarinn ábyrgur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GLEÐIFRÉTTIR

Þetta eru frábærar fréttir. Nú getum við drukkið kaffi en jafnframt látið nokkrar krónur af hendi rakna í þróunaraðstoð til fátækra kaffibænda.  


mbl.is Verður kaffisopinn dýrari?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband