SÁTTAGJÖRÐ Í VERKI

Sáttagjörð

Hilmar: Blessaður, hvað segir kallinn.

Prestur: Allt þetta fína. Hvernig er mamma þín í gigtinni?

Hilmar:  Hún er slæm...ég var að pæla...hvort þú gætir ekki gift okkur.

Prestur: Hvenær?

Hilmar:  Ég var að spá í 8. ágúst á næsta ári, það er að vísu á föstudegi, ertu nokkuð uppbókaður.

Prestur: Bíddu aðeins...nei, ég er laus þá.

Hilmar:  Kannski klukkan 8 um morguninn.

Prestur: Það ætti að vera í lagi.

Hilmar:  Frábært.

Prestur: Hvers son ertu aftur Hilmar.

Hilmar:  Ég er Jónsson

Prestur: Já, auðvitað, ég man vel eftir pabba þínum heitnum. Hvað heitir sú lukkulega?

Hilmar:  Karl Hansson

Prestur: Er þetta karl?

Hilmar: Já, kannastu við hann

Prestur: Nei, reyndar ekki, en því miður get ég ekki gift ykkur, því miður...mér þykir það leitt.

Hilmar:  Bíddu, þú skírðir mig, fermdir mig....af hverju ekki?

Prestur: Ég gifti bara konu og karl.

Hilmar:  En ekki mig og Karl

Prestur: Mér þykir þetta mjög leitt en samviska mín segir nei, því miður, en ég veit til þess að nokkuð margir prestar þjóðkirkjunnar gefa saman karla.

Hilmar:  Hvaða prestar?

Prestur: Ég er nú ekki með þá í kollinum.

Hilmar:  Ertu með lista?

Prestur: Nei, því miður hefur slíkur listi ekki verið gefinn út.

Hilmar:  Ert að segja að ég eigi að fara í símaskránna og hringja og hringja þar til ég fæ já.

Prestur: Já.

Hilmar:  Þú færð sko ekki að jarða mig, vertu blessaður.


mbl.is Stóri sannleikur eða stjórnarskrárbrot?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Svo sannarlega.

Benedikt Halldórsson, 27.10.2007 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 145742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband