Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 27. september 2007
HJÁ TÓMASI
Ég var um 10 ára gamall, í Íslandssögutíma hjá Tómasi Einarssyni kennara í Hlíðaskóla, þegar ég skildi að dauðarefsingar væru rangar.
Tómas sagði frá hefndarskyldunni. Maður sem drap morðingja bróður síns var sjálfur drepin af bróður þess sem hann drap sem svo aftur var drepinn og þannig koll af kolli.
Að vísu talaði Tómas ekkert um dauðarefsingar almennt en ég dró bara þessa ályktun auk þess sem mér var meinilla við að kálfur sem ég hafði gefið að drekka mjólk á hverjum degi i sveitinni skildi líflátinn og étinn með sykruðum, kartöflum, grænum baunum, sósu og rabbabarasultu.
Þá vissi ég að ég gæti hvorki orðið bóndi né böðull.
En aftur að dauðarefsingum. Ég er á móti þeim og nenni ekki að færa rök fyrir þeirri skoðun minni enda eru þau rök ekki bara hlutlaus rök heilatölvunnar minnar heldur er kálfur og kennslustund hjá Tómasi að þvælast fyrir dauðasprautunni.
Aftaka í Texas | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 26. september 2007
MAHMOUD VEIT HVAÐ HANN SYNGUR II
Mahmoud forseti veit hvað hann syngur.
Nú efast engin lengur um heilindi hans og heiðarleika eftir greiningar hans á samtímanum.
Ef sami heilinn er ennþá að verki sem komst að þeirri niðurstöðu að engir samkynhneigðir fyrirfyndust í Íran, segir okkur nú að engin hætta stafi af kjarnorku Írana, stafar engin hætta af kjarnorku Írana.
Við getum andað léttar og slakað á.
Íransforseti segir kjarnorkumáli Írans lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 24. september 2007
MAHMOUD VEIT SVO SANNARLEGA HVAÐ HANN SYNGUR
Alltaf gaman þegar menn sjá hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Mahmoud er ekki haldin neinum grillum af neinum toga, trúir hvorki á álfa, huldufólk né drauga. Hann er réttsýnn, sanngjarn, góðgjarn og ann frelsi, jafnrétti og bræðralagi.
Hann dregur réttilega þá ályktun að engin samkynhneigð fyrirfinnst í Íran vegna þess að engin hefur komið út úr skápnum ennþá.
Við hvað ætti fólk svo sem að hræðast?
Í landi eins og Íran þar sem fólk er frjálst til orðs og æðis er ljóst að það þorir að koma til dyranna eins og það klætt en það vill bara svo skemmtilega til að allir eru eins klæddir.
Ahmadinejad segir samkynhneigð ekki þekkjast í Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 23. september 2007
ÓLUKKUNNAR LOTTÓ
Af hverju lætur fólk plata sig til að kaupa lottómiða í hverri einustu viku árum saman. Gerir fólk sér ekki grein fyrir að það eru ömurlega litlar líkur að fá stóra vinninginn?
Veit fólk ekki að potturinn er fjórfaldur vegna þess að vinningslíkurnar eru svo hræðilega litlar! Og til að kóróna vitleysuna vottar ekki fyrir sektarkennd hjá lottóliðum sem auglýsa grimmt að nú sé hann fjörfaldur, eins og það séu einhver meðmæli með lottóinu. Þótt milljónir raða hafi verið seldar gengur vinningurinn samt ekki út!
Segjum sem svo að þú kaupir eina röð af lottói einu sinni í viku. Hvenær býstu nú við að fá þann stóra? Ekki veit ég líkurnar nákvæmlega en ef þú kaupir miða næsta laugardag og svo á hverjum laugardegi upp frá því, giska ég á að þú þurfir að bíða eftir þeim stóra fram á einhvern laugardaginn árið sautján þúsund og sjö eftir á að giska 15.000 ár.
En þá máttu ekki gleyma að kaupa hann vikulega!
Potturinn fjórfaldur næsta laugardag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. september 2007
ER KAPÍTALISTINN FUNDINN?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21. september 2007
BROSKALL Í GÓÐU SKAPI
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 17. september 2007
CLINTON BORÐAR SS PYLSUR
Ef ég hefði kosningarétt í Bandaríkjunum myndi ég hiklaust kjósa Hillary Clinton enda er hún mikill Sjálfstæðismaður í sér. Hún er ekki eins smámunasöm og Villi í borginni. Að vísu á hún erfiðan eiginmann en ég held að þau hafi bæði lært af reynslunni; hún að erfitt er að eiga við heilbrigðiskerfið og hann að hafa hemil á sér þegar lærlingar eru annars vegar. Hún þekkir herbergjaskipan í Hvíta húsinu mjög vel og mun ekki villast í stjórnkerfinu. Hún mun berjast fyrir almennum mannréttindum og reisn hins venjulega manns og þá er ég ekki að tala um eiginmanninn.
Og eiginmaðurinn borðar SS pylsur sem er góð landkynning.
Clinton kynnir hugmyndir um miklar umbætur á bandaríska heilbrigðiskerfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 16. september 2007
HVAR VARST ÞÚ STADDUR ÞEGAR ÞÚ FRÉTTIR AF GOOGLE?
Ég man hvar ég var staddur; ég var í hádegismat í vinnunni og einn vinnufélagi kom til mín, ég hélt að eitthvað væri að en ég skildi hann bara ekki enda gólaði hann eins og hani. En þá gafst hann upp og skrifaði google.com.
Tíu ár síðan lénið google.com var skráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 13. september 2007
HÆKKUM BENSÍNIÐ Í BOTN
Ef hækkun á bensínverði gæti leitt til þess að þjóðin grenntist, væri kjörið að hækka bensínlíterinn umtalsvert á sama hátt og rándýrt áfengi hefur komið í veg fyrir misnotkun þess og allskonar vandamála sem fylgir ódýru áfengi, auk þess dýrt áfengi hefur komið í veg fyrir ólæti í miðbænum um helgar eins og allir vita.
Lýðheilsustöð ætti að berjast fyrir hækkun á bensíni!
Hækkandi bensínverð talið geta grennt Bandaríkjamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 11. september 2007
HEIMASLÁTRUN
Væri ekki betra að reyna fyrst að freista þess að finna Bin Laden og handsama hann. Koma honum síðan til byggða og sjá svo til. Láta jafnvel dómara um að ákveða örlög Bins. Fred segist ekki vilja taka hann af lífi án dóms og laga en þó vill hann einmitt taka hann af lífi án dóms og laqa. Fred er nefnilega ekki dómsvald og enn síður er hann löginn.
Það þarf semsagt að finna Bin Laden fyrst, drösla honum inn í brúklegan réttarsal. Varla eru réttarsalir í fjallasölum þeim sem Bin hefur haldið sig í undanfarinn ár. Kannski vill Fred að dómari fari með í haustleitirnar til að finna eftirlegukindina, sem dæmdi í máli hennar á staðnum og síðan væri dauðadómnum fullnægt við hamarshögg.
Annars er stórmerkilegt að frambjóðandi telji það auka veg sinn og fylgi að tala um að lífláta einhvern, jafnvel þótt hann heiti Osama Bin Laden.
Ef frambjóðandi á Íslandi vogaði sér að tala svona tæki hann sjálfan sig af lífi pólitískt séð.
Thompson: Nauðsynlegt að handsama bin Laden og taka hann af lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sko
Bloggvinir
- Einar Sveinbjörnsson
- Svava frá Strandbergi
- Óli Björn Kárason
- Jón Axel Ólafsson
- Þorsteinn Gunnarsson
- Kristján Hreinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Bjarni Harðarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Vestfirðir
- Björn Heiðdal
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Möller
- Pálmi Gunnarsson
- Andrés Magnússon
- Haukur Viðar
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Valgerður G.
- Sigurlaug B. Gröndal
- Jóna Á. Gísladóttir
- gudni.is
- Vilhelmina af Ugglas
- Kallaðu mig Komment
- Herra Limran
- Sigríður Jónsdóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Bergur Thorberg
- Heidi Strand
- G.Helga Ingadóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Ólafur fannberg
- Forvitna blaðakonan
- halkatla
- Júlíus Valsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Guðmundur H. Bragason
- Hlynur Þór Magnússon
- Haukur Nikulásson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Grazyna María Okuniewska
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Örvar Már Marteinsson
- Arnar Pálsson
- Ágúst Dalkvist
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Fríða Eyland
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Himmalingur
- Jón Steinar Ragnarsson
- Karl Tómasson
- kiza
- Kolgrima
- Lady Elín
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Páll Vilhjálmsson
- Promotor Fidei
- Ragnar Bjartur Guðmundsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Víðir Ragnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar