Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

HEIMASLÁTRUN

Bin ladenVæri ekki betra að reyna fyrst að freista þess að finna Bin Laden og handsama hann. Koma honum síðan til byggða og sjá svo til. Láta jafnvel dómara um að ákveða örlög Bins. Fred segist ekki vilja taka hann af lífi án dóms og laga en þó vill hann einmitt taka hann af lífi án dóms og laqa. Fred er nefnilega ekki dómsvald og enn síður er hann löginn.

Það þarf semsagt að finna Bin Laden fyrst, drösla honum inn í brúklegan réttarsal. Varla eru réttarsalir í fjallasölum þeim sem Bin hefur haldið sig í undanfarinn ár. Kannski vill Fred að dómari fari með í haustleitirnar til að finna eftirlegukindina, sem dæmdi í máli hennar á staðnum og síðan væri dauðadómnum fullnægt við hamarshögg.

Annars er stórmerkilegt að frambjóðandi telji það auka veg sinn og fylgi að tala um að lífláta einhvern, jafnvel þótt hann heiti Osama Bin Laden.

Ef frambjóðandi á Íslandi vogaði sér að tala svona tæki hann sjálfan sig af lífi pólitískt séð.


mbl.is Thompson: Nauðsynlegt að handsama bin Laden og taka hann af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HITLER OG REYKINGAR

 

doctors smokeHitler var á móti reykingum og hann var grænmetisæta. Hann lagði áherslu á fjölskyldugildi. Það hefur ekkert með glæpi hans gegn mannkyni að gera. Með sömu röksemdafærslu og forráðamenn sjónvarpsstöðvarinnar notuðu gegn konunni sem þeir ráku, mætti ekki tala um að Hitler var frumkvöðull í áróðri gegn reykingum, á sama tíma og læknar lögðu nafn sitt við einstakar tóbakstegundir ísmoke Bandaríkjunum.

Grænmetisát Hitlers, stefna hans í fjölskyldumálum eða andúð hans á reykingum hafði semsagt ekkert með glæpi hans eða gyðingaofsóknir að gera.

Uppúr 1930 var heilsusamlegur lífsstíll nauðsynlegur hverjum góðum nasista. Í raun eiga Lýðheilsustofnanir og nasistar ýmislegt sameiginlegt. Hitler fór í herferð gegn reykingum á opinberum stöðum og fordæmdi reykingar enda fór það afar illa saman að hans Áróður gegn drykkju og reykingumáliti reykingar og nasismi.

„Bræður, er ykkur ljóst að Leiðtogi vor (Hitler) er alfarið á móti reykingum, hann vill að hver þjóðverji sé ábyrgur þegn og góð fyrirmynd sem hafur engan rétt til að eyðileggja heilsu sína með reykingum, áfengi eða lyfjum.“ Sagði í einu málgagna Hitlers.

Hitler var stakur bindindismaður sem drakk hvorki né reykti og var líka á móti óbeinum reykingum. Skoðanabræður hans, þeir Mussolini og Franco tóku Hitler sér til fyrirmyndar og fordæmdu reykingar.  

Eini reykurinn sem fór ekki í tugarnar á Hitler kom frá Auschwitz og öðrum útrýmingarbúðum.

P.S Það hafa verið unnin skemmdarverk á síðunni minni....einhver hefur skipt út mynd, sett inn einhverja dónamynd...ég skil þetta ekki...búin að laga það...


mbl.is Þýsk sjónvarpsstjarna rekin fyrir að vegsama fjölskyldugildi nasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

E

emil2Ég E-fast ekki að ýmis E-efni geti ýtt undir ofvirkni, E-inbeitingaskort, E-irðarleysi og allskonar E-erfiðleika.

E-mil í Katthollti er gott dæmi.


mbl.is Aukaefni í matvælum ýta undir ofvirkni samkvæmt rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ávörp

osamaÉg er dálítið veikur fyrir ávörpum. Ég hlusta alltaf á hátíðleg ávörp forseta og forsætisráðherra um áramót. Ég hlustaði á ávarp útvarpsstjóra sem krakki og fannst það stórmerkilegt. Þegar útvarpsstjóri hafði lokið máli sínu brutust nefnilega út mikil fagnaðarlæti með faðmlögum, kossum og sprengingum.

Ekki er víst að mikil fagnaðarlæti brjótist út þegar Osama hefur lokið sínu ávarpi en það má búast við þó nokkrum sprengingum.


mbl.is Bin Laden sagður ætla að ávarpa bandarísku þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupar mega hafa skoðanir

Biskupinn yfir Íslandi lét færa það til bókar að honum þætti auglýsing Símans ósmekkleg sem er jafn eðlileg og sjálfsögð bókun og þegar stjórnmálaður í stjórnarandstöðu tilkynnir að hann sé á móti tilteknu máli sem stjórnin ætlar að keyra í gegn.

Biskupinn er ekki í stjórn Símans og ber enga skyldu til að leggja blessun sína yfir þessa auglýsingu, hann má segja það sem honum sýnist um hana eða hvaðeina annað sem hann telur viðeigandi. Hann hlýtur að ráða því sjálfur hvað honum finnst, án hótanna í garð annara að sjálfsögðu enda er biskup kurteis og háttvís maður.

Það er hinn mesti misskilningur, ef einhver tekur, að biskupin sé einskonar sjálfsali sem eigi að tala eins og okkur hinum sýnist, en margir hneykslast í hvert skipti sem hann talar um trú eða vogar sér að segja eitthvað annað er hörðustu trúleysingjar hefðu sagt eða ályktað.

Ég vil að stjórnarandstaðan veiti stjórninni aðhald en ég vil líka að biskupar veiti auglýsendum og jafnvel vegfarendum aðhald; en nota bene án hótanna. Um leið og biskupar eða annað fólk hótar með ofbeldi á alls ekki að sýna því tillitsemi. Það er reginmunur á skoðunum og ályktunum fólks eða hótunum ofbeldishópa sem hafa ekki húmor fyrir skopmyndum sem væri svo sem í fínu lagi ef það væri allt og sumt; ef ekki fylgdu hótanir um dráp eða grimmilega hefnd, en það er óþarfi sýna hóturum tillitsemi. Það er stundum kallað meðvirkni þegar allir fara að tipla á tánum til að reita ekki ofbeldismann til ofbeldis. Trú er engin afsökun.

Ef biskupinn yfir öllu Íslandi hefði hótað Símanum eða Jóni Gnarr væri alveg sjálfsagt að taka hann ærlega í karphúsið og hamast vel á honum með háði og spotti þar til hann yrði vel barinn og meyr Biskup.

Og hvað skoðun skildi bloggari hafa á auglýsingu Símans? Mín skoðun skiptir svo sem engu máli enda var það biskupinn sem tjáði sig um auglýsinguna en ekki ég, en ég get svo sem getið þess að mér þótti auglýsingin fræbær.


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband