Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Bubbi í átökum

Þótt þessi veiðifrétt sé vel skrifuð og skemmtileg, held ég þó að fyrirsögnin veki forvitni fólks og geri hana að mest lesnu fréttinni: "Bubbi Morthens í átökum við stórlax", kom mér fyrir sjónir eins og hann hefði lent í góðri rimmu við Árna Johnsen eða jafnvel sjálfan Eirík Jónsson.


mbl.is Bubbi Morthens í átökum við stórlax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Viðskiptabann sett á Texas"

TexasEf Texas væri sjálfstætt ríki, væri ekki mjög fjarstæðukennt að ímynda sér að viðskiptabann yrði sett á það, vegna dauðarefsinganna. 

Það má kannski réttlæta dauðadóma í einstaka tilfellum þótt ég komi ekki auga á hana. Dauðadómum fer fækkandi í Bandarikjunum en ekki í Texas en þróunin er að sjálfsögðu sú, að dauðadómar verða smátt og smátt aflagðir. En eftir hverju er verið að bíða? Að heil kynslóð refsiglaðra öfgamanna í Texas deyi út? 

Væru það ekki frábær tíðindi ef fyrirsagnir væru eitthvað á þessa leið: "Viðskiptabann sett á Texas", þar sem Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið ákveddu í sameiningu að svæla villumennskuna burt með slíkum aðgerðum? Að vísu eru viðskiptabönn umdeild sem bera sjaldnast árangur en Texasbúar myndu glaðir breyta dauðarefsingum í ævilanga dóma (eftir atvikum), í skiptum fyrir hnökralaus viðskipti við nágrannaþjóðirnar. 


mbl.is ESB hvetur ríkisstjóra Texas til að hætta við dauðarefsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótt er að heyra

BettyÞetta eru "góðar" fréttir eða hvað? Eru skilaboðin ekki þau að sá sem álitur sig vera fegurðin uppmáluð, ef þannig má að orði komast, er einnig litinn fallegum augum af öðrum, eða er ég að misskilja málið?

Það er sagt að fólk sem er álitið fallegt, þéni 12% meira en þeir sem álitnir eru ljótir. Ef ég og þú, ættum að skipta fólki í tvo hópa, þann fagra og þann ljóta er ég nokkuð viss um að álit okkar yrði ekki alveg samhljóða, að skekkjumörk yrðu jafnvel meiri en 12% og færi jafnvel eftir dagsformi aðila, þess sem dæmir og þess sem dæmdur er?

Er ekki nokkuð ljóst að vafaatkvæði með gott sjálfstraust færu í flotta hópinn? Getur ekki líka verið að sá sem þénar vel, sé ánægðari með sjálfan sig?

Fólk sem misnotað hefur áfengi og hefur náð að hætt að drekka, fríkkar alveg ótrúlega mikið, stundum um mörg hundruð %, það eru ekki bara hrukkurnar og baugarnir sem hverfa, augun breytast og þau fara jafnvel að geisla.

Hvaðan kemur það?

 


mbl.is Fallegt fólk þénar mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellibyljir, Hitler og Júdas

hitler og fellybylurFellibyljum eru gefin mannanöfn svo hægt sé að tala um þá almennt, t.d. í fréttum. Nú er Dean orðin nokkuð þekktur og allir vita hvað átt er við. Ef hann veldur miklum usla og manntjóni verður nafnið Dean ekki notað aftur, ekki frekar en Katrina sem olli gríðarlegu tjóni árið 2005, auk þess er talið að nöfn á fellybyljum dragi úr líkum á misskilningi ef fleiri fellibyljir eru í gangi á sama tíma. Frá 1953 voru aðeins notuð kvenmannsnöfn en það þótti ekki viðeigandi enda hafa verið notuð karlmannsnöfn til jafns við konunöfnin í rúm 20 ár. Önnur nöfn sem ekki verða notuð aftur eru: Floyd, Andrew, og Mitch. Þessi nöfn verða ekki notuð aftur frekar en Satan, Hitler eða Júdas.




mbl.is Fellibylurinn Dean nær landi á Jamaica
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningarsónar

menningarskanniVinsælasta atriðið á þessari miklu menningarnótt var menningarsónarinn en hann er gæddur þeim eiginleikum að geta skannað og kannað  það sem kann að skorta uppá hjá fólki í menningarlegu tilliti. Skanninn getur einnig kannað hvaða bækur það hefur lesið um ævina, á hvaða myndlistarsýningar það hefur sótt og margt fleira sem óþarfi er að tíunda í smáatriðum, vegna þess að stillingar tækisins eru mjög flóknar enda hefur aðeins útskrifaður menningarlæknir réttindi á tækið, sem er með gervigreindarrafeindavirkja sér til halds og trausts.

Fólk var svolítið feimið í fyrstu að láta skanna hversu mikil menning byggi innra með því, en það lagaðist yfirleitt eftir nokkur glös af hvítvíni. En þó var kona ein sem sagðist hafa farið á meira en 100 myndlistarsýningar, bæði hissa og reið þegar tækið skannaði ekki einu einustu sýningu, hins vegar greindi tækið ógrynnin öll af kokteilum einmitt á þeim tíma sem sýningarnar áttu að hafa staðið yfir. Hún heimtaði endurgreiðslu sem var auðsótt mál.

Það er ósanngjarnt að ætlast til þess að verðbréfasali kunni skil á heimspeki eða heimspekingur kunni á leyndardóma verðbréfanna. Þess vegna er mikilvægt að gefa upp starf og áhugamál þegar menningin er skönnuð og könnuð. En allir sem tóku þátt fengu einkunn eða stig, frá hreinu núlli, upp í hundrað. Þeir sem náðu meira en 90 stigum fengu nafnbótina menningarvitar sem verður staðfest í næsta lögbirtingarblaði.

Ein er sú stilling sem er vinsæl hjá fólki, er hvaða bók ætti helst að vera á náttborðum þess, svona miðað við aldur og fyrri störf. Skanninn finnur semsagt út hvaða ólesna bók ætti að vera næst í lestrarröðinni.

Þrír lögreglumenn sem voru á vakt og og höfðu lítið að gera, enda ekki mikill erill hjá lögreglu og fengeymslur tómar eins og þar stendur, létu skanna sig að gamni sínu. Sá fyrsti fékk langan lista af bókum, en átti helst að byrja á Laxdælu, annar í röðinni sem var mjög hávaxinn, fékk líka langan lista en matreiðslubók handa byrjendum var númer eitt hjá honum, en sá þriðji fékk engan bókarlista, hins vegar var hann vinsamlegast beðin um drífa sig á klósettið, og það strax!


mbl.is Síðustu gestir Menningarnætur á leið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppskrift að góðum Texasbúa

í fangelsi

Ég var bara eins og hver annar, venjulegur maður, en það átti allt eftir að breytast til hins verra. Vandræðin byrjuðu svo sem ósköp sakleysislega. Ég fór að hugsa um eitt og annað smálegt sem betur mætti fara í samfélagi okkar, svona til að slaka á eftir erfiðan vinnudag. En smátt og smátt jók ég þessar hugsanir mínar um óréttlæti heimsins og áður en ég vissi af var ég farinn að hugsa um pyntingar og grimmilegar refsingar.

Ég fór að hugsa einn með sjálfum mér, til að slaka á, þótt ég vissi innst inni að það væri rangt. Hugsanir mínar tóku orðið mestallan minn tíma og að lokum var ég farinn að hugsa alla daga. Um leið og ég vaknaði á morgnana fór ég strax að hugsa og á kvöldin lognaðist ég út af frá hugsunum mínum.

Ég var farinn að hugsa í vinnunni, þótt ég vissi að vinna og hugsanir færu illa saman, en ég réð bara ekki við mig. Ég forðaðist vinnufélaganna í hádeginu til að geta lesið bókina, "Leitina að tilgangi lífsins", eftir Viktor Frankl, en hann taldi að ekki væri mögulegt að lifa ef maður fyndi engan tilgang. Og eftir að hafa lesið um pyntingar nasista og grimmilegar refsingar þeirra en Frankl lifði af vist í "vinnubúðum" nasista, spurði ég vinnufélaganna nánast ósjálfrátt einn daginn, eftir að hafa lesið um illsku mannanna, hver væri eiginlega tilgangur vinnunnar og lífsins almennt, en þeir hlógu bara af mér. Ekki gekk það betur heima. Kvöld eitt slökkti ég á sjónvarpinu og spurði konu mína alvarlegur í bragði; "hver er tilgangur lífsins?".

leitin að tilgangi lífsinsHún svaf um nóttina hjá tengdamömmu. Brátt var ég farinn að fá orð fyrir að vera of mikill hugsuður. Ég var kallaður á teppið hjá yfirmanni mínum sem sagði mér til syndanna og sagði að ég hefði um tvo kosti að velja. Annað hvort hætti ég að hugsa í vinnunni ella yrði mér sagt upp. Þessir afarkostir leiddu mig út í enn meiri hugsanir.

Ég kom snemma heim eftir skammir yfirmannsins og sagði konu minni að ég þyrfti að játa svolítið; "ég hef verið að hugsa".

"Ég veit að þú hefur verið að hugsa," hrópaði hún, "og ég vil skilnað."

"En elskan mín, þetta er ekki svona slæmt!"

"Það er það víst", öskraði hún nánast. "þú ert farinn að hugsa jafn mikið og kennari og og þú veist að kennarar eru á skítalaunum og ef þú heldur svona áfram getum við ekki framfleytt okkur og förum á hausinn!"

"Þetta er tóm vitleysa í þér kona!" svaraði ég pirraður, og hún fór að gráta.

Ég var að niðurlotum kominn. "Ég er farinn á bókasafnið", æpti ég og skellti útidyrahurðinni fast á eftir mér. Ég ók að bókasafninu og ætlaði sko að lesa í burt sorgir mínar. Ég lagði bílnum fyrir framan safnið og hljóp að dyrunum, en það var einmitt lokað þennan dag, það var víst starfsdagur bókasafnsfræðinga. Ég veit núna að máttur mér æðri og betri tók í taumanna þetta kvöld. Ég settist niður á grasflötina fyrir framan bókasafnið uppgefinn á sál og líkama, en þá tók ég eftir skiltinu sem bjargaði lífi mínu.

"Vinur, eru of miklar hugsanir að eyðileggja líf þitt?" stóð á skiltinu. Þú kannast áreiðanlega við þennan frasa, lesandi góður,  sem kemur frá "Thinkers Anonymous" sem eru þekkt samtök í Bandaríkjunum sem hafa hjálpað fólki að halda sönsum.

Í dag er ég óvirkur hugsuður og mér hefur aldrei liðið betur. Ég fer eins oft og ég get á TA samkomur. Við horfum mikið á sjónvarp, á allskonar skemmtiþætti sem ýta ekki yndir hugsanir. Síðan deilum við reynslu okkar, hvernig best er að forðast hugsanakveikjur, ofhugsandi fólk og aðstæður sem gætu leitt til stjórnlausrar hugsunar. Við hugsum ekki, einn dag í senn.

Ég hélt vinnunni og allt gengur miklu betur heima fyrir og lífið varð miklu auðveldara daginn sem ég sá skiltið og ætti að hugsa.

Á morgun er stór dagur í lífi mínu, en þá á ég 3 ára hugsunarleysisafmæli.


mbl.is Aron Pálmi frjáls maður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubba á þing

kóngurinnAf hverju fer Bubbi ekki að þing? Hann á auðvelt með að semja lög, svo kanna hann að rífa kjaft. Blaðamenn hefðu nóg að gera að fylgjast með kappanum bindislausum og jakkafatalausum gefandi yfirlýsingar sem engin skildi og svo gæti orðið skemmtileg átök á milli hans og Árna Johnsens. En í hvaða flokki gæti hann verið? Það gæti orðið vandamál þar sem hann er kóngurinn og kóngar þrífast best í einveldi, spilum og skák.  
mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir afar ósmekklegir brandarar

Þar sem ég hef ekkert að segja í dag læt ég þessar tvær myndir tala fyrir mig..

djöfullin finnur ekki gleraugun sín

karl og kona


Vítahringur

vítahringurAð sjálfsögðu á að verðlauna fólk fyrir góða "hegðun" ef það er þjóðhagslega hagkvæmt. Það er ekki síður hægt að reikna út ávinninginn á því að borga fólki fyrir að fara í megrun, byggja brú eða gera jarðgöng. Það mætti líka athuga hvort ekki borgaði sig að greiða fólki sem er háð vímuefunum, ef það nær að hætta neyslu. En mjög margt fólk er á að launum við drekka frá sér lífið. það fer á örorkubætur út á drykkjuna og ein spurningin í örorkumatinu er hvort viðkomandi drekki fyrir hádegi.

Það er reginmunur á áfengissýki og öðrum sjúkdómum.

Þegar sjúkdómar eða slys leiða til örorku eru örorkubæturnar notaður til að borga húsnæði, mat og aðrar nauðsynjar og jafnvel ónauðsynjar. Það er einkamál hvers og eins hvernig peningunum er varið, en örorkubætur handa virkum alkóhólistum dregur bara vesöldina á langinn.

Tilgangur velferðar, örorkubóta og læknisþjónustu er ekki að ýta undir heilsuleysi eða dauða. Reynt er eftir fremsta megni að koma sjúklingi til heilsu eða halda í horfinu. Þegar ofdrykkjumaður sem hefur litla sem enga stjórn á drykkju sinni fær bætur út á stjórnleysið er hann fastur í öfugsnúnu velferðarkerfi sem sogar hann ofan í kviksyndi, vegna þess að bæturnar eru ekki notaðar til uppbyggingar heldur til niðurrifs, til áframhaldandi drykkju sem varir þar til heilsan gefur sig eða viðkomandi deyr. Það er nógu erfitt að geta ekki neitað sér um vímu þótt íslenska ríkið sé ekki að bjóða öllum sem eiga í erfiðleikum með að neita sér um áfengi, drykkjupeninga í formi örorkubóta.

Ég geri mér grein fyrir að þetta blogg hljómar ekki vel, en ég meina vel, því get ég lofað.


mbl.is Fá greiðslur fyrir að megra sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi fer kjörtímabili Fidels að ljúka

Fidel fer frá völdumAldrei hef ég skilið þá aðdáun sem einvaldurinn og harðstjórinn Fidel nokkur Castro nýtur. Ég skil hana ekki. Þegar stjórnmálamenn á íslandi sitja lengur en eitt kjörtímabil, ég tali nú ekki um tvö, hvað þá þrjú, er talið sko aldeilis tímabært að skipta út og fá nýtt fólk að stjórn landsins. Fidel er búin að vera lengur við völd á Kúbu en elstu menn þora að muna en einræði hans og harðstjórn er yfirleitt réttlædd með vondum Ameríkönum.  Hins vegar er nokkuð öruggt að kjánaprikið hann Bush fari fljótlega frá völdum vegna þess að í Bandaríkjunum eins og á Íslandi eru þó kosningar á fjögurra ára fresti. Kjörtímabil hins sjálfkjörna Fidels lýkur hins vegar ekki fyrr en við dauða hans, og vonandi fer kjörtímabili hans að ljúka sem fyrst.


mbl.is Kastró fagnar 81s árs afmæli sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband