Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Það vantar töff björgunarsveitarbúning

superman%20traditional Það er of seint að kenna stórum hluta fólks mannasiði enda tekur gott uppeldi uppundir  20 ár. Það er alltof langur tími; miðbærinn þolir ekki slíka bið. Nú verður Vilhjálmur að fara í einhverskonar björgunarbúning sem hæfir tilefninu; sem er hvorki meira né minna en að bjarga miðbænum, á sama hátt og hann íklæddist slökkviliðsbúningi rétt í þann mund sem allt var komið í rúst vegna brunans á horni Austurstrætis og Lækjargötu.
mbl.is Margir leigubílstjórar treysta sér ekki í miðbæinn um helgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að verða undir hundaskít

hundur og caterpillar"Ég á hund og einu sinni sem oftar fór ég með hundinn minn út að labba sem er svo sem ekki í frásögur færandi, nema hvað, þegar ég er búin að ganga um það bil 378 metra frá útidyrahurðinni, mætir mér þá ekki þessi risastóri hundur; hann var svo stór að hann hefði getað gleypt litla hundinn minn í einum munnbita. Eigandi stóra hundsins hafði ekki þrifið risatóra kúkinn upp sem fylgir svona stórum hundum; og hvað haldið þið? Ég datt ofan í kúkinn á bólakaf, ég get svarið það, en það sem varð mér til lífs að ég hafði farið á snjóflóðanámskeið og gat krafsað mig út úr hundaskítnum með miklum erfiðismunum, ég fékk síðan áfallahjálp en hreinsunardeild Reykjavíkurborgar sá um að moka upp skítinn." Höfundur er enn að jafna sig.

Ég vona svo að konan Mosfellsbænum nái sér að fullu og Koli líka.


mbl.is Eigandinn beinbrotnaði og tvísýnt um líf hundsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm salerni og kælir

j2068Ég veit til þess að í sumum tilvikum þarf fólk sem býr í miðbænum að spúla viss horn sem eru notuð sem klósett. Það er því hreint þjóðráð að borgarráð skuli koma upp betri salernisaðstöðu, að vísu mættu WC klefarnir vera miklu fleiri um helgar til að minnka piss- og kúkerí í húsasundum. En miðað við ástand miðbæjarins um helgar þyrfti að koma upp ferðaklósettum við hvert einasta húsasund og hvert horn. Reyndar hafa nokkrir húsasundaeigendur gripið til þess ráðs að loka "pissuskálum" sínum um helgar með þeim afleiðingum að ásóknin í ólokuð húsasund hefur aukist, sem anna ekki eftirspurn.

miðbærinnSíðan mætti leyfa verslunarstjóranum í vínbúðinni í Austurstræti ákveða hvernig hann selur bjórinn, kældan eða volgan.


mbl.is Bæta þarf fimm salernum við í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunaði ekki Gvend

amma og afiGrunaði ekki Gvend Rasmusen. Nú eigum við ekki lengur áhyggjulaus kvöld eftir að hafa komið gamla fólkinu fyrir á elliheimili. 

Ímyndin af ömmunnu prjónandi sokka og afanum sem sér um að svara í síman og les Kiljan með þykkum svörtum gleraugum; Pardísarheimt og Innansveitarkróniku, já blessuð ímyndin er fokin út í veður og vind. Blessuð sé minning hennar.

"Settu inn skýr skilaboð eftir að sónninn heyrist".


mbl.is Kynlífslöngun spyr ekki um aldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amma sænska internetsins

Ef Peter Löthberg er faðir sænska  internetsins, er þá ekki mamma hans amma internetsins?
mbl.is Vel tengd amma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fórnfýsi

Hafmeyjan lokkaði til sín lax sem lét lífið fyrir Hannah.


mbl.is Hafmeyjan lokkaði til sín lax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra smákælimálið

Nú er kælirinn fullur, sagði Vilhjálmur borgarstjóri við þá hjá R.V.T.Á og vildi mælinn burt en ekki kælinn.


mbl.is Borgarstjóri: Mín vegna má setja kælinn upp aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um sveitalegu Mosfellssveitina?

Hvað varð um Mosfellssveitina? Var hún lögð niður? Hvað varð um gömlu góðu Stuðmennina sem voru svo ungir en eldast svo vel í fjarlægð. Það hefði verið gaman að halda í Mosfellssveitina, sem sveitó bæjarfélaf með lúðalegum íbúum eins og gamlir Stuðmenn í asnalegum sokkum, með asnalegan hatt og asnalegt hljómborð. Hvað varð um sveitalegu Mosfellssveitina?


mbl.is 20 ára afmæli Mosfellsbæjar fagnað á tónleikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Naustin

Lögreglunni vantar geymslur fyrir fólkið sem lognast út af og hefur sig ekki aftur í gang fyrir eigið vélarafl. Ég myndi vilja kalla slík afdrep Naust. í staðin fyrir að segja að mikill erill hafi verið á lögreglu og allar fangageymslur fullar, væri mikill erill hjá lögreglu og Naustin full eða tóm (vonandi).

En stoltastur ertu og stærstur í roki á haustin.

Strandmölin grýtir landið. Þú seilist í naustin.

Skýin, þau hanga á himninum slitin í tötra. -

Það hriktir í bænum, eins og kippt sé í fjötra.

- Þá bryðurðu gaddinn við grúfandi bátastefnin.

Grunnsjórinn beljar um voginn, svo jarðirnar nötra.

En hafáttin er húmi og blikum til skipta;

hún hleypir skammdegisbrúnum föl undir svefninn.

Þá hamastu, tröllið. Í himininn viltu lyfta

hyljum þíns eigin dýpis og álögum svipta.

Einar Benediktsson


mbl.is Áfengisdauðum verði sinnt í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband