Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

ER ORKUÚTRÁSIN NÝTT LOTTÓ?

Fimmtudaginn 1. júlí, 1999 - Viðskiptablað

BANKARNIR VIÐURKENNA VERÐMÆTI DECODE


KAUP Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Landsbankans og Búnaðarbankans á 17% hlut í deCODE Genetics Inc., móðurfyrirtæki Íslenskrar erfðagreiningar, sýna svo ekki verður um villst að í ÍE liggur eitt magnaðasta viðskiptatækifæri sem Íslendingar hafa staðið frammi fyrir. Það er ekki nóg með að fyrirtækið hafi flutt til landsins fjölda vísindastarfa og sérþekkingu. Það er að ryðja brautina fyrir íslensk þekkingarfyrirtæki til að afla fjár til starfsemi sinnar erlendis. ÍE er að notfæra sér nýuppgötvaðar auðlindir og beitir markaðsöflunum til að virkja þær. Á sama tíma er fyrirtækið orðið umræddasta og jafnframt eitt umdeildasta fyrirtæki landsins. Miðað við kaupgengi bankanna þriggja er félagið orðið það verðmætasta á landinu, með markaðsverðmæti upp á 500 milljónir bandaríkjadala, eða 37 milljarða íslenskra króna. Greiningarmenn og sérfræðingar þessara þriggja banka hljóta að hafa orðið sáttir við þetta mat eftir ýtarlega skoðun. Bankar geta ekki leyft sér að nota svo stóran hluta eigin fjár síns til hlutabréfakaupa, nema vera alveg vissir í sinni sök....

<> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <> <><> <> <> <>   

Hvað getum við lært af ofnagreindri dæmisögu?


mbl.is Lottóvinningur kvöldsins gekk ekki út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRIÐARSÚLA?

Það er skemmtileg tilviljun að friðarsúlan skuli fá orkuna frá Orkuveitunni en svo sannarlega hefur engin friður verið um hana og enn skemmtilegra er að sjálfur Villi sem hefur tekist með lagni að fá alla upp á móti sér skuli líka vera viðriðin friðarsúluna. Og sumir segja að Yoko Ono hafi slökkt í friðarpípu Bítlanna.

Hver á að tendra ljósin, Bush?


mbl.is Ein friðarsúla nægir Yoko Ono
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2000 VANDINN LEYSTIST ÁRIÐ 2000...

 ...er skrýtinn fyrirsögn og þó. Frétt DV er röng í öllum aðalatriðum og ekki ætla ég að bera í bætifláka fyrir hana. Dorrit er mjög góð forsetafrú og Ólafur er ágætur forseti og án efa vel að verðlaununum kominn. En þó tel ég ekki að spádómsgáfur Ólafs séu ekki upp á marga fiska þegar haft er í huga að hann spáði fyrir um litla ísöld á íslandi í ávarpi til þjóðarinnar fyrir um 9 árum síðan.  Honum til afsökunar át hann vísdóm sinn upp eftir vísindamönnum en eins og allir vita hafa þeir reynst afburða lélegir spámenn um framtíðina. Tunglstöð sem framleiðir rafmagn fyrir jarðarbúa er eitt gott dæmi sem ég birti fyrir neðan þessa færslu.  2000 vandinn var uppblásinn vandi sem var ekki í neinu samræmi við úlfaldan sem reyndist lítil býfluga.

Gefum Ólafi orðið: (leturbreyting er mín).

Sveit fremstu vísindamanna heims, formlega valdir sem fulltrúar þjóðríkja, hefur skilað niðurstöðum um breytingar á hitastigi, hækkun á yfirborði sjávar, umturnun hafstrauma, gróðurfars og lífsskilyrða jarðarbúa. Ef svo heldur fram sem horfir gæti hitaaukning víða um heim gert gróðursvæði að eyðimörk en annars staðar yrði kólnun í ætt við ísaldartíma. Breytingar á saltstigi sjávar myndu stöðva aflvélina sem knúið hefur hringrás hafstraumanna og ylurinn sem við höfum hlotið úr suðurhöfum hætta að berast hingað.

Lega Íslands og lykilhlutverk Golfstraumsins á okkar slóðum eru á þann veg að áhrif loftslagsbreytinganna myndu koma hvað harðast niður á okkur Íslendingum og gera landið nánast óbyggilegt fyrir barnabörn okkar og afkomendur þeirra.

Jökulhella mun þá leggjast yfir landið allt, fiskistofnarnir sem haldið hafa lífi í þjóðinni um aldir hverfa úr hafinu umhverfis, hluti núverandi byggða sökkva við hækkun sjávarborðs.

Þessi lýsing er ekki heimsendaspá eða efnisþráður í skáldlega hryllingssögu heldur kjarninn í vísindalegum niðurstöðum fræðimanna sem skipa hina formlegu ráðgjafasveit ríkja heims, niðurstöðum sem lýsa því sem gæti hafist á æviskeiði þeirra Íslendinga sem nú eru börn í skóla. Ísland hefur einmitt í þessari vísindaumræðu verið tekið sérstaklega sem dæmi um hrikalegar afleiðingar loftslagsbreytinganna. Virtur vísindamaður, sérfræðingur við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum, sagði nýlega í viðtali við eitt helsta dagblað heims: "Ísland yrði þakið jöklum allt til stranda. Íbúarnir yrðu að yfirgefa það." ­ Landið okkar góða yrði þá í raun og sann ísa fold.

Við Íslendingar ættum því að vera í fararbroddi þeirra sem á alþjóðavettvangi krefjast þess að tafarlaust verði gripið til róttækustu gagnaðgerða til að forða heiminum frá slíkri loftslagsbreytingu. Við ættum að fagna þeim vilja sem þjóðir heims sýna nú til samstarfs, hefja með öðrum breytingar á eldsneytisnotkun skipa og bifreiða og beita nýrri tækni sem auðveldar loftslagsvæna framleiðsluhætti. Við eigum að gleðjast yfir þeim tækifærum sem öld umhverfisverndar getur fært okkur Íslendingum ef við sjálf höfum vit og vilja til að nýta kosti Íslands. Það er annars sérkennilegt hve illa okkur hefur gengið að sýna í verki hollustu við vernd umhverfis, lífríkis og landgæða. Við höfum látið ættjörð okkar blása upp og eytt svo gróðri með óhóflegri beit hrossa og sauðfjár að Ísland er nú mesta eyðimörk álfunnar.


mbl.is Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

24 ÁRA GÖMUL PRENTVILLA

sálarorka

YFIRLÝSING FRÁ BENEDIKTI II

páfiAð gefnu tilefni vil ég undirritaður, Benedikt II (alnafni afa míns), taka fram að skoðanir Benedicts XVI eru mér algerlega óviðkomandi auk þess sem ég brúka ekki húfur.
Virðingarfyllst, Benedikt II.

mbl.is Yfirlýsing frá Ragnari Axelssyni ljósmyndara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GUÐNI ER SKEMMTILEGUR

Eitt má Guðni eiga; hann er skemmtilegur! Það er fæstum stjórnmálamönnum gefið, að vísu myndi ég frekar vilja að leiðinlegan mann sem væri góður stjórnmálamaður en skemmtilegan mann sem væri vondur stjórnmálaður (menn eru líka konur). En svo er spurning hvenær menn eru góðir stjórnmálamenn og hvenær menn eru skemmtilegir stjórnmálamenn en stundum veit maður ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta yfir þeim.

Ég ætla að minnsta kosti að kaupa bókina hans Guðna og lesa hana eftir jólasteikina.


mbl.is Ævisaga Guðna Ágústssonar gefin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÚTUR ÚR JÁRNTJALDI

Ég kom til hafnarborgar í Austur-Þýskalandi áður en járntjaldið féll, að vísu aðeins á bryggjuna vegna þess að fraktskipið vöktuðu tveir hermenn með vélbyssu og það var ekki fyrirhafnarinnar virði að reyna að dröslast í bæinn. Einhverjir úr áhöfninni fóru en það var tómt vesen og flestir voru bara um borð á kvöldin, drukku bjór og tefldu. Lífið í þessari borg snerist um eftirlit, leit og endalausa tortryggni.

Einhverju sinnu var ég að vinna um borð og þurfti að sækja hlut á bryggjuna sem var í um 5 metra frá bryggjubrún. Ég labba landganginn eins og ekkert væri sjálfssagðara en þá kemur annar hermannanna með vélbyssu og heimtaði passport ákveðinn. En þá benti ég honum á að ég væri aðeins að sækja lítið ómerkilegt járnstykki sem var svo nálægt að hann hefði þess vegna getað rétt mér það. Ég benti honum á járnið en hann svaraði aftur með, passport, passport. Ég reyndi að mögla en sneri við þegar ég sá svipinn á hermanninum, mér sýndist hann lyfta byssunni. Ég fór niður í káetu og náði í vegabréfið. Gekk aftur út á landganginn og sýndi honum það. Hann skoðaði bréfið í krók og kima og leyfði mér síðan formlega að ná járnstykkið sem lág fyrir aftan hann.

Hermaðurinn lét eins og ég væri að biðja um bút úr járntjaldinu.


« Fyrri síða

Um bloggið

Sko

Höfundur

Benedikt Halldórsson
Benedikt Halldórsson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun
  • engin hamfarahlýnun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband